Lauslega farið með staðreyndir

Hér er farið ansi laust með fréttafluting áður en staðreyndir liggja fyrir.  

Flugvélar af þessari stærð eru með tvöföld framhjól og af fréttini í BNA, skylst mér að einn hjólbarði af framhjólinu hafi rúllað af vélinni.  Í fyrirsögninni hljómar þetta eins og að hér sé enn eitt framleiðsluvandamálið frá Boeing, en það er mjög ólíklegt í þessu tilfelli.  Flugvélin í þessu atviki hefur verið í notkun síðan 1992 eða í 31 ár og ekki líklegt að þetta sé einhver galli frá framleiðandanum.

Til að setja þetta í samhengi fyrir almennan lesanda, þá skipta flugvirkjar um hjól á vélunum með vissu millibili - þá er felgan tekin af hjólinu, skipt um hjólbarða og allt yfirfarið og hjólið síðan fest aftur á hjólabúnaðinn.  

Það er mikið líklegra í þessu tilfelli að þegar skipt var um dekk á vélinni síðast, þá hafi ekki verið gengið rétt að verki í að festa hjólið á, og þetta væri á ábyrgð þeirra sem skiptu um dekkið, ekki einhver framleiðslugalli hjá Boeing.

Eins og öll flug atvik, þá verður þetta rannsakað af NTSB og trúlega fylgir endurþjálfun til að slíkt gerist ekki aftur.

Boeing á í nógum vandræðum nú þegar, og engin ástæða að vera að klína þessu á þá áður en staðreyndir liggja fyrir.


mbl.is Enn eitt óhappið hjá Boeing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband